Skilmálar vefsins

content image

Notendaskilmálar fyrir vefinn langtimaleigaabil.is sem er í eigu Brimborgar

Notkun á vefsvæði Brimborgar, www.langtimaleigaabil.is, er háð eftirfarandi notkunarskilmálum. Vinsamlega kynnið ykkur þá vandlega áður en þið notið vefsvæðið. Með notkun á vefsvæðinu samþykkir þú að vera bundin(n) af þessum notkunarskilmálum.

Takmörkun á afnotum: 
Efnið á vefnum, hvort sem um er að ræða texta, myndir eða annað efni, er í eigu Brimborgar og verndað af höfundarréttarlögum. Óheimilt er að nota efnið í heild sinni eða að hluta í atvinnuskyni eða til tekjuöflunar en þó er heimilt að vísa í efni á vefnum. Brimborg áskilur sér rétt til að banna tilvísanir sem gerðar eru í atvinnuskyni eða tilvísanir sem til þess eru fallnar að kasta rýrð á Brimborg eða þau vörumerki sem fyrirtækið hefur umboð fyrir. Athygli er vakin á því að öll vörumerki á þessum vef eru skráð vörumerki og er algerlega óheimilt að nota þau, dreifa eða afrita nema með skriflegu leyfi eiganda vörumerkisins.

Efni vefsvæðisins: 
Vefsvæði Brimborgar inniheldur upplýsingar um þær vörur eða þjónusta sem Brimborg býður til sölu hér á landi skv. samkomulagi við birgja hverju sinni. Ekki er tryggt að vörur á þessum vef séu ávallt til á lager eða þjónusta í boði og í einstaka tilfellum er eingöngu um að ræða að vara sé seld gegn sérpöntun. Brimborg og birgjar fyrirtækisins áskilja sér rétt til að breyta vöruframboði án fyrirvara, breyta verði án fyrirvara og breyta búnaði án fyrirvara. Upplýsingarnar á vefsvæðinu eru ekki tæmandi og koma aldrei í stað þeirra upplýsinga sem söluráðgjafar Brimborgar veita. Brimborg leggur áherslu á að upplýsingar á vefsvæðinu séu réttar en afsalar sér ábyrgð á því ef upplýsingar reynast rangar.

content image
content image

Verð á vöru og þjónustu
Verð vöru- og þjónustu á vefnum er einungis til viðmiðunar. Upplýsingar um verð, lýsing vöru, staðalbúnaðar og verð aukabúnaðar fela ekki í sér bindandi tilboð af hálfu Brimborgar. Slíkar upplýsingar kunna að vera úreltar og Brimborg beinir því til notanda að sannreyna upplýsingarnar sem fram koma á vefsvæðinu á hverjum tíma hafi hann í hyggju að nýta þær með einhverjum hætti. Verð er með virðisaukaskatti nema annað sé sérstaklega tekið fram og getur breyst án fyrirvara og getur verið háð gengi á hverjum tíma en nánar er kveðið á um verðskilmála í kaupsamningi eða við aðra staðfestingu við kaupa á vöru og þjónustu.

Vernd persónuupplýsinga: 
Brimborg mun ekki nota þær persónuupplýsingar sem þú veitir fyrirtækinu í gegnum vefsvæðið til að senda þér upplýsingar eða tilboð ef þú óskar ekki eftir því. Brimborg mun ekki undir neinum kringumstæðum selja eða láta þriðja aðila í té umræddar upplýsingar.

Tenging við önnur vefsvæði: 
Brimborg ber ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum sem unnt er að tengjast í gegnum vefsvæði Brimborgar og eru með öllu ótengdir Brimborg eða þeim birgjum sem Brimborg er umboðsaðili fyrir. Jafnframt ber Brimborg ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum öðrum sem veita aðang að vefsvæði Brimborgar.

Takmörkun ábyrgðar: 
Brimborg tekur ekki ábyrgð á fjárhagslegu eða ófjárhagslegu tjóni af neinu tagi sem notandi eða aðrir kunna að verða fyrir vegna notkunar á vefsvæðinu. Brimborg áskilur sér rétt til að endurskoða þessa skilmála hvenær sem er.

Lögsaga og dómstólar: 
Notkunarskilmálarnir eru háðir íslenskum lögum og íslenskir dómstólar hafa einir lögsögu í ágreiningsmálum sem varða notkunarskilmálana og vefsvæðið.