Hvað er innifalið í langtímaleigu á bíl?
- Föst mánaðarleg greiðsla.
- Bifreiðagjöld.
- 14.000 km í akstur á ári. Þú getur valið auka km eftir þínum þörfum.
- Dekkjaskipti að vori og hausti. Viðskiptavinur getur valið nagladekk í stað vetrardekkja honum að kostnaðarlausu. Dekkjaskipti eru í boði tvisvar á ári.
- Þjónustuskoðun á 12 mánaða fresti skv. þjónustuáætlun bíls.
- Ótakmarkaðir ökumenn, 21 árs eða eldri.
- Lánsbíll án endurgjalds tímabundið ef leigutæki bilar, verður fyrir tjóni eða verður óökufært samkvæmt skilyrðum skilmála.
- Ábyrgðar og kaskótrygging með tiltekinni sjálfsábyrgð. Hægt er að bæta við tryggingum.
Hvað er verðið á auka kílómetrum?
Innifalinn akstur í langtímaleigu er 14.000 km á ári.
Þegar þú pantar bíl getur þú valið meiri akstur, 18.000 km eða 25.000 km á ári. Sá akstur er verðlagður inn í mánaðarverðið sem sést í pöntunarferlinu, og ekkert kílómetraverð bætist við hann.
Ef samið er um umframkílómetra síðar, eftir að leiga er hafin, kosta þeir 19 kr/km fyrir fólksbíla og rafmagnsbíla, 29 kr/km fyrir litla jeppa og fjölsæta bíla.
Ef bílnum er skilað og búið er að keyra fleiri kílómetra en þá sem voru umsamdir á samningnum gildir verð fyrir óumsamda umframkílómetra: 49 kr/km fyrir fólksbíla og rafmagnsbíla, 59 kr/km fyrir litla jeppa og fjölsæta bíla.
Einnig þarf að hafa í huga að kílómetragjald bætist aukalega ofan á þetta verð, en það er þá rukkað miðað við raunakstur viðskiptavinar.
Við biðjum viðskiptavini að fylgjast vel með akstrinum. Ef þú ert að fara fram yfir kílómetrafjöldann sem þú samdir um í upphafi leigunnar, endilega hafðu samband við okkur til að bæta við kílómetrum.
Ökumenn í æfingarakstri
Einstaklingum býðst að fá akstursleyfi fyrir börn sín á langtímaleigubíl. Greitt er fyrir ökumenn í æfingarakstri 3.900 kr á mánuði. Ökumenn mæta á skrifstofuna ásamt leigutaka með ökuskírteini sitt. Leigutaki ber ábyrgð á þeim ökumönnum sem eru skráðir á leigusamning hans. Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við langtimaleigaabil@langtimaleigaabil.is.
Hvaða leigutími er í boði?
Langtímaleiga er í 12, 24 eða 36 mánuði, bæði á nýjum og notuðum bílum. Auðvelt er að framlengja leigusamning þegar á líður.
Hvernig fer greiðsla fram?
Einstaklingar: Greiðsla fer eingöngu fram í gegnum kreditkort. Viðskiptavinur skal framvísa gildu ökuskírteini og kreditkorti í sínu nafni við afhendingu bílsins. Sýndarkort eins og í gegnum Apple Pay eru ekki tekin gild. Við upphaf leigu greiðir viðskiptavinur fyrsta mánuðinn og svo einn mánuð í tryggingu. Trygging er endurgreidd við lok leigutímabilsins ef ökutæki er tjónlaust og ekkert útistandandi (23. gr. skilmála).
Fyrirtæki: Fyrirtækjum býðst kostur á að sækja um reikningsviðskipti við Brimborg ehf.
Hvað kostar að skila bíl áður en leigutíma lýkur?
Viljir þú skila bílnum áður en leigutíma lýkur er heimilt að skuldfæra gjald sem ræðst af því hve mikið er eftir af leigutímanum þegar bílnum er skilað:
- 12 mánuðir eða minna eftir: tvöfalt mánaðarlegt leigugjald.
- Meira en 12 en minna en 24 mánuðir eftir: sexfalt mánaðarlegt leigugjald.
- 24 mánuðir eða meira eftir: áttfalt mánaðarlegt leigugjald.
Dæmi: bíl á 36 mánaða samningi er skilað eftir 6 mánuði. Þá eru 30 mánuðir eftir og gjaldið er áttfalt mánaðarlegt leigugjald. Sjá 24. gr. skilmála.
Dekkjaskipti
Viðskiptavinum langtímaleigunnar stendur til boða að skipta um dekk tvisvar á ári, þá á sumardekk yfir sumarmánuðina og á haustin stendur svo til boða að skipta á annað hvort negld eða ónegld vetrardekk.
Löglegt tímabil nagladekkja er frá 1. nóv. til 14. apríl, af þessu leiðir að nagladekk eru bönnuð frá 15. apríl til 31. október.
Hvar þjónusta ég bílinn?
Það er alltaf hægt að hafa samband beint við bílaleiguna varðandi þjónustu og eins er hægt að senda póst á netfangið langtimaleigaabil@langtimaleigaabil.is. Brimborg notast við Noona appið og er viðskiptavinum frjálst að bóka tíma þar, bæði á Max1 stöðvum eða á umboðsverkstæði viðeigandi bíls.
Reynslutími á leigu
Enginn reynslutími er á langtímaleigu á nýjum bílum, hins vegar stendur öllum viðskiptavinum Langtímaleigu Brimborgar til boða að reynsluaka bæði nýjum og notuðum bílum hjá söludeildum Brimborgar.
Langtímaleiga er í 12, 24 eða 36 mánuði. Viljir þú prófa bíl í styttri tíma er mánaðarleiga í boði á völdum bílum, sjá Tilboðsbíla.
Kílómetragjald á bílum
Við verð á bílum bætist kílómetragjald. Kílómetragjald er í dag 6,95 kr. á kílómetra.
Ásamt kílómetragjaldinu er rukkað umsýslugjald. Umsýslugjaldið er 1.922 kr. á mánuði, með vsk.
Gagnlegar upplýsingar um kílómetragjald
Hvernig er akstur metinn? Tvær leiðir eru notaðar við akstursmat og uppgjör.
1) Besti kosturinn – senda inn km-stöðu (raunstöðu):
- Leigutaki sendir inn km-stöðu, að lágmarki 1× á 6 mánaða fresti.
- Staðan er borin saman við síðustu skráðu stöðu og út frá því reiknast meðalakstur tímabilsins.
- Skatturinn notar meðalakstur til að áætla mánaðarlega innheimtu.
2) Ef km-staða er ekki send inn:
- Skatturinn áætlar akstur út frá almennum viðmiðum, sem getur verið hærra en raunverulegur akstur.
- Því er alltaf mælt með að senda inn raunstöðu.
Hversu oft? Að lágmarki 1× á 6 mánaða fresti; oftar ef akstur er breytilegur. Heimilt er að skrá km-stöðu með 30 daga millibili. Uppgjör fer fram í hvert skipti sem km-staða er skráð, að lágmarki 1× á ári og við skil bíls.
Hvernig sendi ég inn km-stöðu? Í spjalli við Góa eða með tölvupósti til Brimborg Langtímaleigu. Til að uppfærsla geti farið fram þarf km-stöðuna (töluna af mælinum) og dagsetningu þegar staðan var tekin.
Aðalskoðun ökutækja í Langtímaleigu
Það er á ábyrgð leigutaka að sjá um aðalskoðanir á ökutækjum í Langtímaleigu.
Hægt er að fara á næstu skoðunarstöð Aðalskoðunar þegar tímabært er að fara með bíl í aðalskoðun, en þeir sjá um skoðun viðskiptavinum að kostnaðarlausu.
Komi upp athugasemdir í skoðun eru viðskiptavinir beðnir um að hafa samband við Langtímaleigu svo hægt sé að taka ákvörðun um næstu skref.






