Tryggingar
Hægt er að lækka sjálfsábyrgð og auka tryggingarvernd með kaupum á:
- Platínum kaskótryggingu. Engin sjálfsábyrgð.
- Platínum kaskótrygging nær yfir tjón á rúðum, framljósum, skemmdum á lakki vegna grjótkasts og tjóni á undirvagni.
- Platínum kaskótrygging nær ekki yfir tjón á felgum, hjólbörðum, hjólkoppum, fjöðrun, rafgeymum eða útvarpi, né tjón af sandi, ösku eða öðrum jarðefnum sem fjúka á bílinn (47. gr. skilmála).
Verð á mánuði kr. 15.000,-
Mánaðarleiga - Tryggingamöguleikar
Langtímaleigubíll er tryggður en leigutaki ber ábyrgð á að fara vel með langtímaleigubílinn og ber ábyrgð á tjóni undir sjálfsábyrgðarupphæð og tjóni sem hann veldur ef notkun hans á bílnum brýtur í bága við skilmála og umferðarlög. Silfur kaskótrygging er innifalin í leiguverði og er ábyrgðar- og kaskótrygging með sjálfsábyrgð 350.000 kr. Með Platínum kaskótryggingu er sjálfsábyrgðin 0 kr.
Algengar spurningar um tryggingar á langtímaleigu
Hvernig trygging fylgir með bílnum
Allir bílarnir okkar eru með svo kallaða Silfur kaskótryggingu, sjálfsábyrgð á henni er 350.000 kr.
Platínum kaskótrygging
Hægt er að borga aukalega fyrir Platínum kaskótryggingu en verðið á henni er 15.000 kr. á mánuði. Sjálfsábyrgð á henni er 0 kr.
Hvað er tryggt með Platínum tryggingu?
Platínum kaskótrygging inniheldur Silfur kaskótryggingu og nær auk þess yfir tjón á framrúðu og öðrum rúðum, tjón á framljósum og lakki vegna grjótkasts frá öðrum bílum á malarvegum, og tjón á undirvagni, s.s. pústkerfi, gírkassa og vél, ef bíllinn tekur niðri á vegi sem hann má aka.
Hún nær ekki yfir tjón á felgum, hjólbörðum, hjólkoppum, fjöðrun, rafgeymum eða útvarpi, né tjón af sandi, ösku eða öðrum jarðefnum sem fjúka á bílinn. Almennir fyrirvarar Silfur kaskótryggingar gilda líka, t.d. vatnstjón og akstur undir áhrifum. Sjá 46.–47. gr. skilmála.
Hvað gerist ef bíll tjónast?
Ef bíll tjónast af völdum viðskiptavinar látum við Cabas meta tjónið á nokkrum völdum verkstæðum, í kjölfarið er valið lægsta boð og viðskiptavinur rukkaður. Sé viðskiptavinur í rétti er nóg fyrir okkur að fá tjónaskýrslu og við sjáum um rest.






