Fjárhæðir gjalda sem skilmálarnir vísa til eru í gjaldskrá.
Skilmálar leigusamnings um ökutæki í langtímaleigu
Eigandi: Brimborg ehf. Kt. 701277-0239, Bíldshöfða 6, 110 Reykjavík.
Með fullu samþykki á neðangreindu staðfesta leigutaki og eigandi leigusamninginn með rafrænni undirritun sinni. Leigutaki staðfestir sérstaklega að hafa kynnt sér skilmála þessa með því að haka í þar til gerðan reit í kjölfar rafrænnar undirritunar.
Skyldur leigutaka
1. Skilmálar þessir gilda um leigu á því ökutæki („ökutækið“) sem er tilgreint í leigusamningi leigutaka og eiganda og eru hluti hans. Leigutaki hefur fengið afrit af skjölum samningsins og samþykkir þau með rafrænni undirritun sinni. Leigutaki hefur kynnt sér efni skjalanna og ber ábyrgð á því gagnvart eiganda að aðrir ökumenn á hans vegum geri slíkt hið sama. Leigutaki lýsir því einnig yfir að hann hafi kynnt sér gjaldskrá eiganda sem vísað er til í þessum skilmálum.
1a. Gjaldskrá eiganda er birt á vefsíðu hans, www.langtimaleigaabil.is, og telst hluti leigusamningsins. Í gjaldskránni koma fram fjárhæðir þeirra gjalda sem vísað er til í skilmálum þessum, þar á meðal umsýslugjöld, þjónustugjöld, hreinsunargjald og önnur gjöld sem eiganda er heimilt að innheimta samkvæmt samningnum. Fjárhæðir eru tilgreindar með virðisaukaskatti þar sem hann á við.
1b. Eiganda er heimilt að breyta gjaldskrá sinni á samningstímanum, m.a. vegna verðlagsbreytinga, breytinga á kostnaði eiganda eða breytinga á opinberum gjöldum, og að bæta við nýjum gjaldaliðum vegna þjónustu eða kostnaðar sem til fellur samkvæmt samningnum. Breyting tekur gildi við birtingu nýrrar gjaldskrár á vefsíðu eiganda og eigi fyrr en 30 dögum eftir að leigutaka hefur verið tilkynnt um hana með tölvupósti eða öðrum sannanlegum hætti. Um hvert gjald gildir sú gjaldskrá sem í gildi er þegar hið gjaldskylda atvik á sér stað.
1c. Breyting á gjaldskrá hefur ekki áhrif á umsamið mánaðarlegt leigugjald samkvæmt leigusamningi, sbr. þó 23a.–23c. gr. og 26. gr. Frestur skv. 1b. gr. gildir ekki um hækkun leigugjalds skv. 26. gr., enda tekur hún gildi samhliða gildistöku hinnar opinberu álagningar.
2. Leigutaki eða ökumaður á vegum leigutaka skal hafa gilt ökuskírteini í sínu nafni með útgáfudegi og gildistíma.
3. Við undirritun leigusamnings skal leigutaki annað hvort framvísa gildu kreditkorti, sem ekki er fyrirframgreitt, í eigin nafni eða vera með viðskiptareikning hjá eiganda. Eiganda er heimilt að skuldfæra kreditkort eða viðskiptareikning í samræmi við 51. gr. Ekki er heimilt að notast við kreditkort í nafni annars aðila en leigutaka. Sýndarkort eins og í gegnum Apple Pay eru ekki tekin gild.
4. Leigutaki skal skila ökutækinu:
- Ásamt öllum fylgihlutum (þ.m.t. hjólbörðum, verkfærum og hleðslukapli þegar það á við) í sama ásigkomulagi og við móttöku að undanskildu eðlilegu sliti vegna notkunar.
- Á tilskildum tíma samkvæmt leigusamningi nema um annað verði samið síðar.
- Til umsaminnar starfsstöðvar eiganda, eða á annan stað sem sérstaklega er samið um við eiganda, nema um annað verði samið síðar.
- Með fullum eldsneytisgeymi af viðeigandi eldsneyti. Ef ökutæki er ekki skilað með fullum eldsneytisgeymi af viðeigandi eldsneyti er eiganda heimilt að innheimta hjá leigutaka gjald sem nemur því eldsneyti sem vantar til að geymir sé fullur ásamt þjónustugjaldi samkvæmt gjaldskrá eiganda. Ef leigutaki skilar ökutækinu með röngu eldsneyti er eiganda heimilt að innheimta hjá leigutaka viðgerðarkostnað sem fellur til vegna þessa. Ekki þarf að fullhlaða ökutækið ef um rafbíl er að ræða. Ekki er gerð krafa um tiltekna hleðslustöðu rafbíls við skil og ekkert gjald leggst á vegna hleðslustöðu, nema um annað sé sérstaklega samið í leigusamningi.
5. Leigutaki skal umgangast ökutækið þannig að það verði ekki fyrir óeðlilegu sliti eða tjóni og ber ábyrgð á daglegri umhirðu. Í því felst til að mynda reglulegt eftirlit með olíu, loftþrýstingi í dekkjum, sliti á þurrkublöðum, þrifum o.s.frv. Leigutaki skal panta tíma hjá eiganda þegar þess er þörf. Leigutaki skal þá einnig færa ökutækið til þjónustu og annarra viðgerða samkvæmt fyrirmælum eiganda. Þau fyrirmæli skulu vera með tölvupósti eða öðrum sannanlegum hætti. Mæti leigutaki ekki með ökutæki samkvæmt fyrirmælum eiganda er eiganda heimilt að taka ökutækið í sína vörslu án frekari fyrirvara á kostnað leigutaka. Eiganda er heimilt að innheimta og leigutaka er skylt að greiða fyrir kostnað sem hlýst af vanrækslu á eðlilegu eftirliti.
6. Leigutaki skal greiða fyrir eldsneyti og allan annan kostnað er leiðir af rekstri ökutækisins meðan það er í umsjá hans en það er frá því að ökutækið er afhent leigutaka og þar til eigandi hefur skráð ökutækið sem móttekið í kerfi sínu. Þá skráningu er eingöngu hægt að framkvæma á starfsstöð eiganda, á opnunartíma eiganda og þegar ökutækið er staðsett á starfsstöð eiganda. Leigutaki er ábyrgur fyrir öllu tjóni sem ökutækið verður fyrir á meðan það er í vörslu hans, þ.m.t. tjóni sem verður á ökutækinu eftir að lykill ökutækisins er skilinn eftir í skilaboxi utan opnunartíma og þar til ökutækið er skráð sem móttekið í kerfi eiganda.
Leigutaki skal greiða eiganda allan kostnað sem fellur til við að koma ökutækinu á starfsstöð eiganda ef það hefur verið skilið eftir án eftirlits, án tillits til ástands ökutækisins, vega eða veðurs.
7. Leigutaki staðfestir með undirritun sinni á afhendingarskoðunarblað að hafa móttekið ökutækið og fylgihluti þess í góðu ásigkomulagi, sbr. þó athugasemdir um skemmdir á blaðinu. Leigutaki greiðir fyrir skemmdir sem ekki eru merktar á afhendingarskoðunarblað. Ýmist er greitt samkvæmt gjaldskrá eða gögnum frá verkstæði sem eigandi velur og er viðurkennt á viðeigandi sviði.
8. Ef leigutaki ber ábyrgð á bilun eða er ekki tryggður fyrir tjóni samkvæmt leigusamningnum er eiganda heimilt að innheimta viðbótargjald sem nemur daglegu leigugjaldi samkvæmt leigusamningnum, þ.e. mánaðarlegu leigugjaldi deilt með 30, margfölduðu með dagafjöldanum sem viðgerð tekur samkvæmt gögnum frá verkstæði sem eigandi velur og er viðurkennt á viðeigandi sviði, þó að hámarki þrjátíu (30) dagar. Við innheimtu þessa viðbótargjalds þarf eigandi ekki að leggja fram gögn um flotanotkun, raunverulegt fjárhagslegt tap, raunverulegan tapaðan hagnað eða tapaða hagnaðarvon. Enn fremur skiptir ekki máli hvort leigutaki hefur fengið nýtt ökutæki vegna viðkomandi bilunar eða tjóns né heldur hvort leigutaki hefur greitt sérstaklega fyrir það nýja ökutæki.
9. Framlenging leigutíma er háð samþykki eiganda og verður að vera staðfest með tölvupósti eða öðrum sannanlegum hætti. Ef leigutaki lætur hjá líða að skila ökutækinu á samþykktum tíma eða lætur eiganda ekki vita af áformum sínum um að framlengja leiguna getur eigandi lagt hald á ökutækið á kostnað leigutaka eftir að hafa veitt áminningu í tölvupósti eða með öðrum sannanlegum hætti. Ef ökutækinu hefur ekki verið skilað 1-24 klukkustundum eftir samþykktan leigutíma mun eigandi krefja leigutaka um leigu allt að einum heilum mánuði samkvæmt gjaldskrá sinni. Ef það reynist nauðsynlegt að leggja hald á ökutækið mun eigandi krefja leigutaka um allan kostnað sem hann verður fyrir.
10. Eigandi má leggja á sérstakt hreinsunargjald samkvæmt gjaldskrá sinni ef ökutækið er óvenju óhreint að innan við skil þess að hans mati. Litið verður svo á að ökutækið sé óvenju óhreint að innan ef t.d. matur eða drykkir hafa slest á innréttingu, bleyjur hafa verið skildar eftir, gæludýrahár eru í ökutækinu umfram það sem venjuleg þrif ná eða líkamsvessar finnast í ökutækinu.
10a. Hreinsunargjald er eitt gjald samkvæmt gjaldskrá og leggst á fyrir hverja hreinsun. Það kemur ekki í stað bóta vegna varanlegra skemmda. Krefjist ástand ökutækisins viðgerðar eða endurnýjunar íhluta greiðir leigutaki þann kostnað að fullu samkvæmt gögnum frá þjónustuaðila sem eigandi velur.
11. Stranglega bannað er að reykja eða nota rafrettur í ökutækinu. Ef leigutaki brýtur gegn þessu ákvæði getur eigandi lagt á sérstakt hreinsunargjald og viðbótargjald eftir eigin gjaldskrá.
12. Leigutaki skal aka ökutækinu af varkárni. Leigutaki er ábyrgur fyrir tjóni sem hlýst af notkun ökutækisins sem tryggingafélag eiganda greiðir ekki þ.m.t. tjóni á ökutækinu og/eða meiðslum á farþegum eða öðrum sem rekja má til:
- Aksturs utan vega svo sem á vegatroðningum og á götuslóðum, um fjörur, forvaða eða aðra vegleysu.
- Aksturs í vatni, yfir ár eða hvers konar vatnsföll.
- Notkunar ökumanns á hvers konar vímugjöfum.
- Notkunar ökutækis andstætt íslenskum lögum og/eða leigusamningnum.
- Ásetnings eða gáleysis leigutaka eða ökumanns á vegum leigutaka.
Notkun ökutækis við ofangreindar aðstæður er einnig bönnuð nema að eigandi hafi gefið sérstakt leyfi fyrir því í leigusamningnum.
13. Til viðbótar við þau atriði sem talin eru upp í 12. gr. er leigutaka óheimill:
- Akstur ökutækja án aldrifs/fjórhjóladrifs á vegum sem eru F-merktir á opinberum kortum, sem og á Kjalvegi (vegi 35), Kaldadal (vegi 550) og Jökulhálsleið (vegi 570).
- Akstur minni jeppa með aldrif/fjórhjóladrif sem flokkast sem „litlir“, „meðalstórir“ eða „lúxus“ á vegunum F-88 og F-894 (Öskjuleið), F-249 (Þórsmörk) og F-578 (Arnarvatnsvegi). Aftur á móti er heimilt að aka stærri jeppum með aldrif/fjórhjóladrif á fyrrgreindum vegum að því skilyrði uppfylltu að ökumaður sýni fyllstu aðgát.
- Akstur í snjósköflum og á ís.
- Akstur í vatni, yfir ár eða hvers konar vatnsföll. Þó getur leigutaki óskað eftir ökutæki sem hentar í slíkan akstur með því skilyrði að farið sé yfir á vaði og á hraða undir 4 km á klst. en þess skal þá sérstaklega getið í leigusamningi. Slíkur akstur er alfarið á áhættu og ábyrgð leigutaka, sbr. b-lið 12. gr.
Ef leigutaki brýtur gegn ofangreindum stafliðum má eigandi leggja gjald á leigutaka jafnhátt og nemur eigin áhættu í Silfur kaskótryggingu samkvæmt gjaldskrá eiganda hverju sinni. Þetta gjald hefur ekki áhrif á skyldu leigutaka til að greiða fyrir tjón.
14. Ef til árekstrar eða annars slyss kemur skal leigutaki þegar í stað tilkynna atvikið til lögreglu og eiganda og skal hann ekki yfirgefa vettvang fyrr en lögregla er komin þangað eða hún hefur tilkynnt að hún muni ekki koma. Leigutaki skal þegar í stað fylla út tjónsskýrslu ef um tjón er að ræða. Ef leigutaki tilkynnir ekki þegar í stað um tjón á ökutækinu sem verður á leigutímanum ber hann fulla ábyrgð á því tjóni.
15. Ef eigandi þarf að sækja ökutækið eða láta sækja það í kjölfar áreksturs eða annars slyss er leigutaki ábyrgur fyrir öllum kostnaði samkvæmt gjaldskrá eiganda. Ef þjónusta þriðja aðila er nauðsynleg til þess að bjarga ökutækinu eða flytja það fer kostnaður eftir gjaldskrá björgunaraðilans sem leigutaki skal kynna sér áður en hann nýtir sér þjónustuna. Eiganda er heimilt að krefja leigutaka um björgunarkostnað fyrir hönd björgunaraðilans. Kostnaðurinn við björgunina getur verið tryggður að hluta eða fullu í tryggingu leigutaka samkvæmt leigusamningi en það fer eftir túlkun tryggingafélags eiganda. Ef leigutaki óskar eftir þjónustu þriðja aðila fyrir milligöngu eiganda en dregur ósk sína til baka áður en þjónustan er veitt kann leigutaki að þurfa að greiða upphafsgjald samkvæmt gjaldskrá þriðja aðilans.
16. Fjöldi kílómetra (km) sem ökutækinu er ekið meðan leigusamningur er í gildi skal ákveðinn með álestri á mæli sem fylgir ökutækinu frá framleiðanda. Leigutaki skal tilkynna eiganda svo fljótt sem auðið er ef mælirinn er eða verður óvirkur á leigutíma.
17. Leigutaka er óheimilt að láta fara fram viðgerðir eða breytingar á ökutækinu (t.a.m. merkingar á ökutæki) og fylgihlutum þess án áður fengins samþykkis eiganda. Leigutaka ber ávallt að fjarlægja öll ummerki um heimilaðar viðgerðir og breytingar áður en ökutækinu er skilað að leigu lokinni.
18. Leigutaki er ábyrgur fyrir öllum stöðusektum, stöðugjöldum, sektum fyrir umferðarbrot, veggjöldum (þ.á.m. gjöldum fyrir akstur í gegnum göng) og öðrum sambærilegum sektum og gjöldum sem stofnast á leigutímanum. Leigutaki skal greiða öll gjöld og sektir samkvæmt þessu ákvæði ásamt umsýslugjaldi samkvæmt gjaldskrá eiganda fyrir hverja sekt, hvert gjald eða hverja tilkynningu sem eiganda berst. Umsýslugjald leggst einnig á þegar eigandi veitir stjórnvöldum, sveitarfélagi eða þriðja aðila upplýsingar um ökumann eða umráðamann ökutækisins, enda þótt sektin sjálf sé innheimt hjá leigutaka af öðrum en eiganda.
19. Leigutaki er ábyrgur fyrir aksturslagi sínu og að kynna sér akstursskilyrði á hverjum tíma. Eigandi er ekki ábyrgur fyrir neinu tjóni á ökutækinu eða öðrum kostnaði vegna veðurs, ástands vega eða vegatálma. Ef leigutaki lendir í vanda vegna ofangreindra skilyrða, t.d. festist í snjó, er leigutaki ábyrgur fyrir öllum kostnaði sem kann að falla til þ.m.t. björgunarkostnaði (sjá 15. gr.) og hugsanlegum viðgerðarkostnaði. Ef hurðir ökutækisins skemmast vegna veðurs er leigutaki ábyrgur fyrir slíku tjóni.
20. Leigutaka er ekki heimilt að nota ökutækið til að flytja farþega gegn gjaldi, lána ökutækið eða framleigja það án samþykkis eiganda.
21. Ef leigutaki er tryggður af þriðja aðila er það á ábyrgð leigutaka að kynna sér skilmála sem gilda um þá tryggingu. Leigutaki er ábyrgur fyrir að innheimta endurgreiðslu frá þriðja aðila vegna tryggingar þriðja aðila.
22. Leigugjald er skuldfært mánaðarlega, fyrirfram og fyrir einn mánuð í senn. Innifalið í leigugjaldi er akstur samkvæmt leigusamningi. Leigutaki skal greiða fyrir umframakstur. Gjald vegna umframaksturs er lægra ef samið er um umframakstur fyrirfram. Gjald vegna umframaksturs samkvæmt þessari grein er sjálfstætt gjald samkvæmt leigusamningi og er óháð kílómetragjaldi skv. 22a. gr., sem leigutaki greiðir til viðbótar. Gjalddagi er almennt sjöundi dagur hvers mánaðar ef leigutaki greiðir með kreditkorti og tíundi dagur hvers mánaðar ef leigutaki er með viðskiptareikning hjá eiganda. Sé leigugjald ekki greitt á fyrirfram ákveðnum gjalddaga getur eigandi lagt hald á ökutækið eftir að hafa veitt áminningu í tölvupósti eða með öðrum sannanlegum hætti. Ef það reynist nauðsynlegt að leggja hald á ökutækið mun eigandi krefja leigutaka um allan kostnað sem hann verður fyrir, þar með talið að skipta um lykla af ökutæki.
Kílómetragjald
22a. Leigutaki greiðir kílómetragjald og eftir atvikum sérstakt kílómetragjald vegna aksturs ökutækisins á leigutímanum, sbr. lög um kílómetragjald á ökutæki. Eigandi er skráður eigandi ökutækisins og þar með gjaldskyldur aðili gagnvart ríkinu og endurkrefur leigutaka um gjaldið. Fjárhæð gjaldsins ræðst af lögum og þyngdarflokki ökutækisins og getur tekið breytingum. Gildandi fjárhæð er tilgreind í gjaldskrá eiganda.
22b. Kílómetragjald er skuldfært mánaðarlega eftir á og reiknast af þeim kílómetrum sem eknir eru á leigutímanum. Liggi álestur ekki fyrir er eiganda heimilt að skuldfæra gjaldið samkvæmt áætlun ríkisskattstjóra eða, liggi hún ekki fyrir, áætlun eiganda um meðalakstur sem byggð skal á skráðum akstri sama ökutækis síðustu þrjá mánuði eða á skráðum akstri frá afhendingu ef leigutími er skemmri og gera upp mismuninn, til hækkunar eða lækkunar, þegar álestur liggur fyrir. Lokauppgjör fer fram við skil ökutækisins. Nýti eigandi heimild laga til uppgjörs með daggjaldi eða föstu akstursgjaldi endurkrefur hann leigutaka um það gjald með sama hætti.
22c. Til viðbótar kílómetragjaldi greiðir leigutaki umsýslugjald vegna kílómetragjalds samkvæmt gjaldskrá eiganda fyrir hvern byrjaðan mánuð leigutímans. Umsýslugjaldið tekur til skráningar álestra, eftirlits, uppgjörs og innheimtu vegna kílómetragjalds.
22d. Eigandi annast skráningu á stöðu akstursmælis. Leigutaki skal að beiðni eiganda upplýsa um stöðu akstursmælis, t.d. með skráningu á vefsíðu eiganda eða ljósmynd af mælaborði, innan sjö daga frá beiðni, og færa ökutækið til álestrar ef eigandi óskar þess. Verði dráttur á skráningu sem rekja má til leigutaka ber hann þann kostnað sem af því hlýst, þar á meðal vanskráningargjald, álag, dráttarvexti og kostnað vegna álestrar hjá faggiltri skoðunarstofu, ásamt umsýslugjaldi samkvæmt gjaldskrá.
Greiðsla við afhendingu
23. Við afhendingu ökutækis til leigutaka skal leigutaki greiða fjárhæð sem nemur tvöföldu mánaðarlegu leigugjaldi. Helmingur fjárhæðarinnar er til tryggingar á efndum leigutaka samkvæmt leigusamningnum og er endurgreiddur við skil á ökutækinu að því gefnu að enginn kostnaður sem greiðast skal af leigutaka samkvæmt skilmálum þessum sé útistandandi, þar með talinn kostnaður vegna skemmda á ökutæki. Hinn helmingur fjárhæðarinnar er greiðsla leigugjalds fyrir fyrsta mánuð leigutímans og kemur ekki til endurgreiðslu.
Vísitölutenging leigugjalds
23a. Mánaðarlegt leigugjald samkvæmt leigusamningi er tengt vísitölu neysluverðs sem Hagstofa Íslands birtir mánaðarlega. Grunnvísitala er sú vísitala sem í gildi er við undirritun leigusamnings og skal hún tilgreind í samningnum ásamt grunnleigugjaldi.
23b. Leigugjaldið breytist mánaðarlega í hlutfalli við breytingu vísitölunnar frá grunnvísitölu, þannig að hver 1% breyting vísitölunnar frá grunnvísitölu leiðir til 0,4% breytingar á mánaðarlegu leigugjaldi frá grunnleigugjaldi. Breytingin reiknast ávallt frá grunnvísitölu og grunnleigugjaldi en ekki frá leigugjaldi næsta mánaðar á undan. Breytingin kemur til framkvæmda á fyrsta gjalddaga eftir birtingu nýrrar vísitölu.
23c. Breyting leigugjalds skv. 23b. gr. telst ekki breyting á gjaldskrá og um hana gildir hvorki frestur skv. 1b. gr. né 1c. gr. Leigugjald verður þó aldrei lægra en grunnleigugjald samkvæmt leigusamningi þótt vísitalan lækki. Falli vísitala neysluverðs niður eða verði grundvelli hennar breytt skal miðað við þá vísitölu sem kemur í hennar stað.
Leigutími, opinber gjöld og lánshæfi
24. Leigutímabil skal tilgreina í leigusamningi. Óski leigutaki eftir að skila ökutæki áður en leigutímabil er liðið er eiganda heimilt að skuldfæra fjárhæð sem ræðst af eftirstöðvum leigutímabilsins þegar ökutækinu er skilað, sem hér segir: nemi eftirstöðvarnar 12 mánuðum eða minna, tvöfalt mánaðarlegt leigugjald; nemi þær meira en 12 mánuðum en minna en 24 mánuðum, sexfalt mánaðarlegt leigugjald; nemi þær 24 mánuðum eða meira, áttfalt mánaðarlegt leigugjald. Fjárhæðin verður þó aldrei hærri en samanlagt leigugjald fyrir eftirstöðvar leigutímabilsins.
25. Óski leigutaki eftir framlengingu með nýjum samningi skal leigutaki færa ökutækið til skoðunar hjá eiganda áður en nýr leigusamningur er undirritaður.
26. Ef opinber gjöld, skattar eða aðrar álögur sem lagðar eru á ökutækið, notkun þess eða leigu þess eru hækkuð, ný gjöld tekin upp, ívilnanir felldar niður eða fyrirkomulagi álestrar, álagningar eða innheimtu breytt á samningstímanum, er eiganda heimilt að hækka leigugjaldið sem því nemur eða innheimta viðkomandi gjald sérstaklega hjá leigutaka, ásamt umsýslugjaldi samkvæmt gjaldskrá, frá og með gildistöku breytingarinnar. Þetta á m.a. við um virðisaukaskatt, bifreiðagjald, kílómetragjald, veggjöld, kolefnisgjald og hvers kyns sambærileg gjöld. Eigandi skal tilkynna leigutaka um breytinguna með tölvupósti eða öðrum sannanlegum hætti.
27. Eiganda er heimilt að kanna lánshæfi leigutaka hjá þriðja aðila áður en samningur er gerður. Skriflegu leyfi leigutaka til að afla lánshæfisupplýsinga skal skila inn á starfsstöð eiganda eða rafrænt með sannanlegum hætti. Leigutaki getur ekki opnað viðskiptareikning hjá eiganda án þess að standast lánshæfismat. Ef leigutaki færir rekstur sinn á nýja kennitölu nýtur hann ekki kjara samkvæmt fyrri viðskiptareikningi án þess að standast lánshæfismat að nýju. Slíkt kallar jafnframt á undirritun nýs leigusamnings. Ef leigutaki uppfyllir ekki framangreind skilyrði getur eigandi lagt hald á ökutækið eftir að hafa veitt áminningu í tölvupósti eða með öðrum sannanlegum hætti. Ef það reynist nauðsynlegt að leggja hald á ökutækið mun eigandi krefja leigutaka um allan kostnað sem hann verður fyrir og má leggja gjald á leigutaka, jafnhátt og nemur eigin áhættu í Silfur kaskótryggingu samkvæmt gjaldskrá eiganda á hverjum tíma.
Skyldur eiganda
28. Eigandi skal gera sitt besta til að afhenda ökutækið á tilsettum tíma og í samræmi við allar kröfur. Varalyklar skulu geymdir hjá eiganda nema um annað sé sérstaklega samið og skal það þá tekið fram á leigusamningi.
29. Eigandi skal upplýsa leigutaka um innihald leigusamningsins og sérstaklega um skyldur þær sem leigutaki tekst á hendur.
30. Ef ökutækið bilar vegna venjulegs slits eða af öðrum ástæðum sem ekki eru á ábyrgð leigutaka skal eigandi afhenda leigutaka annað ökutæki svo fljótt sem auðið er eða tryggja að gert verði við ökutækið svo fljótt sem auðið er á þeim stað sem eigandi ákveður. Ofangreint hefur ekki áhrif á greiðslu leigugjalds samkvæmt leigusamningi. Eigandi skal ekki greiða neinar skaðabætur í ofangreindum tilvikum, hvorki vegna gistingar né af öðrum ástæðum.
31. Eigandi lætur þjónusta og gera við ökutækið. Eigandi útvegar leigutaka að kostnaðarlausu og með sömu tryggingakjörum tímabundinn skiptibíl þegar um er að ræða reglubundna þjónustu, viðgerð á bilun sem ekki er á ábyrgð leigutaka eða viðgerð á tjóni sem leigutaki er tryggður fyrir samkvæmt leigusamningnum. Kostnaður af reglubundinni þjónustu, dekkjaskiptum og viðgerð á bilun sem ekki er á ábyrgð leigutaka greiðist af eiganda. Leigutaka ber að skila tímabundnum skiptibíl og sækja ökutækið um leið og eigandi hefur sannanlega upplýst hann, með tölvupósti eða öðrum hætti, um að ökutækið sé tilbúið. Ef leigutaki dregur að skila tímabundnum skiptibíl má eigandi skuldfæra leigugjald fyrir bílinn samkvæmt gjaldskrá sinni fyrir hvern hafinn dag frá fyrrgreindri tilkynningu.
32. Eigandi ákveður hvort rétt er að leigutaki fái nýtt ökutæki á samningstímanum vegna venjulegs slits, bilunar sem leigutaki ber ekki ábyrgð á eða tjóns sem leigutaki er tryggður fyrir samkvæmt leigusamningnum frekar en að gert verði við ökutækið sem samið var um í upphafi. Ef leigutaki ber ábyrgð á bilun eða er ekki tryggður fyrir tjóni samkvæmt leigusamningnum fær leigutaki ekki nýtt ökutæki út samningstímann.
33. Vilji eigandi takmarka notkun ökutækis með hliðsjón af útbúnaði þess og/eða ástandi vega skal það gert skriflega við undirritun leigusamnings.
34. Eigandi ábyrgist að vera ávallt með gildar lögboðnar ökutækjatryggingar fyrir ökutækið og gilda ábyrgðartryggingu vegna starfsemi sinnar.
35. Eigandi er ekki ábyrgur fyrir brotthvarfi eða tjóni á eignum sem leigutaki eða þriðji aðili geymir eða flytur í ökutækinu.
Gagnavinnsla
36. Samningurinn inniheldur eftirfarandi upplýsingar samkvæmt íslenskum lögum: Nafn leigutaka, kennitölu, heimilisfang, símanúmer, tölvupóstfang og númer ökuskírteinis. Þessara upplýsinga er aflað þegar leigutaki bókar leigu gegnum netið og/eða við afhendingu.
37. Samningurinn inniheldur númer kreditkorts leigutaka að hluta ef leigutaki er ekki með viðskiptareikning hjá eiganda. Kreditkortanúmer eru skráð í kerfi eiganda en er samstundis skipt út fyrir sýndarnúmer svo eigandi geymir aldrei kortaupplýsingar hjá sér. Aðeins færsluhirðir sem uppfyllir öryggisstaðalinn PCI DSS meðhöndlar kortaupplýsingar. Gilt kreditkort, sem ekki er fyrirframgreitt, er trygging fyrir kostnaði sem leigutaka ber að greiða samkvæmt leigusamningnum.
38. Eiganda ber að geyma leigusamninginn og þær upplýsingar sem hann hefur að geyma í þrjú ár hið minnsta. Eiganda er heimilt að geyma samninginn og upplýsingarnar lengur ef það er nauðsynlegt vegna lögmætra hagsmuna hans, svo sem vegna ágreinings, kröfu eða lagaskyldu, þó aldrei lengur en sjö ár frá lokum leigutímans.
39. Ef ökutæki inniheldur ökurita sem er hluti af umsjónarkerfi fyrir ökutækjaflota eiganda, er bannað að eiga við eða fjarlægja búnaðinn.
40. Ökuritinn mælir ekna kílómetra, ástand ökutækisins og högg sem það verður fyrir. Hann gerir eiganda kleift að sjá staðsetningu ökutækisins í rauntíma. Eigandi fylgist ekki að staðaldri með ökuferli ökutækisins, en búnaðurinn skráir og sendir eiganda viðvörun ef ökutækið er statt þar sem akstur er óheimill samkvæmt leigusamningnum, sbr. b-lið 41. gr. Eiganda er heimilt að varðveita slíkar viðvaranir og þær staðsetningarupplýsingar sem þeim fylgja á meðan þörf krefur til að gæta réttar síns.
41. Ökuritinn hefur þann tilgang:
- Að bæta viðbragð eiganda þegar leigutaki lendir í ógöngum, t.d. árekstri eða bilun.
- Að auðvelda eiganda að fylgjast með hvort leigutaki virðir takmarkanir samkvæmt leigusamningnum. Sem dæmi sendir búnaðurinn viðvörun til eiganda ef leigutaki ekur ökutæki án aldrifs/fjórhjóladrifs á vegum sem eru F-merktir á opinberum kortum.
- Að auðvelda eiganda að tryggja fullnægjandi viðhald bíla (fyrirbyggjandi og vegna bilunar) svo virkni þeirra sé með öruggasta móti.
- Að auðvelda eiganda að gera grein fyrir bílum sem ekki eru í leigu.
- Að auðvelda eiganda álestur á stöðu akstursmælis og uppgjör kílómetragjalds skv. 22a.–22d. gr.
42. Með samþykki sínu á þessum skilmálum samþykkir leigutaki gagnavinnslu eiganda í tengslum við leigusamninginn, þ.m.t. not á ökurita, með því skilyrði að eigandi haldi trúnað um ofangreinda gagnavinnslu.
Tryggingar
43. Innifalið í leigugjaldinu eru lögboðnar ökutækjatryggingar, þ.e. ábyrgðartrygging og slysatrygging ökumanns og eiganda, sem og Silfur kaskótrygging með fyrirframákveðinni eigin áhættu fyrir hvert tjón samkvæmt gjaldskrá eiganda. Þjófnaðartrygging er einnig innifalin en hún tekur aðeins til stuldar á ökutækinu sjálfu.
44. Bótasvið og vátryggingarfjárhæð ábyrgðartryggingar ræðst af íslenskum lögum hverju sinni sem og skilmálum tryggingafélags eiganda.
45. Sú fjárhæð sem leigutaki þarf að greiða vegna tjóns á ökutækinu getur numið heildarvirði ökutækisins eftir eðli tjóns og umfangi tryggingar. Eigin áhætta fyrir hvert tjón sem leigutaki er tryggður fyrir samkvæmt leigusamningnum er tilgreind í samningnum.
46. Silfur kaskótryggingin nær ekki til eftirfarandi atriða:
- Tjóns sem valdið er af ásetningi eða sökum stórkostlegs gáleysis ökumanns.
- Tjóns sem verður vegna þess að ökumaður er undir áhrifum áfengis, örvandi lyfja eða sljóvgandi lyfja eða er að öðru leyti ófær um að stjórna ökutækinu af öryggi.
- Tjóns sem verður á ökutækinu í hvers kyns kappakstri, aksturskeppni eða við æfingar fyrir slíkar keppnir.
- Tjóns sem hlýst af stríði, borgarastyrjöld, óeirðum eða óspektum.
- Tjóns af völdum dýra, annarra en sauðfjár, kúa, hreindýra og hesta.
- Tjóns á innra byrði ökutækisins vegna meðferðar leigutaka, s.s. meðferðar á mat og drykk, reykingum o.s.frv. Göt sem brennd eru á sæti, teppi eða gólfmottur eru ekki tryggð.
- Tjóns af völdum sjóbleytu.
- Tjóns vegna aksturs þar sem bannað er að aka ökutækinu, svo sem aksturs á vegatroðningum, götuslóðum, snjósköflum, ís, yfir óbrúaðar ár eða læki, um fjörur, forvaða eða aðra vegleysu. Þó bætir trygging skemmdir er verða þegar ökumaður hefur sannarlega neyðst til að fara út af akbraut, t.d. vegna viðgerðar á vegi.
- Tjóns sem verður á fólksbílum þegar ökutækinu er ekið á F-merktum vegum samkvæmt opinberum kortum og á vegum töldum upp í a-lið 13. gr.
- Tjóns sem hlýst af röngu eldsneyti sem sett er á ökutækið.
- Tjóns sem verður þegar stigið er á ökutækið, setið er á því eða farangur eða annað er sett á það.
- Tjóns á jeppum með aldrifi/fjórhjóladrifi í flokkunum „litlir“, „meðalstórir“ eða „lúxus“ sem hlýst af akstri á F-vegum sem taldir eru upp í b-lið 13. gr.
- Tjóns á lakki, rúðum, ljósum, plasti, krómi og felgum af völdum sands, malar, ösku, gosösku eða annarra jarðefna sem fjúka á ökutækið.
- Vatnstjóns á ökutækinu.
- Tjóns sem aðeins verður á felgum, hjólbörðum, hjólkoppum, fjöðrun, rafgeymum, öðru gleri en rúðum eða útvarpi. Ef einstakir hjólbarðar, felgur eða hjólkoppar glatast eða verða fyrir tjóni á leigutímanum greiðir leigutaki fyrir það samkvæmt gjaldskrá.
- Tjóns á framrúðu og öðrum rúðum. Ef framrúða skemmist ein og sér á leigutímanum greiðir leigutaki fyrir það samkvæmt gjaldskrá.
- Þjófnaðar á einstökum hlutum ökutækisins og því tjóni sem hlýst af.
- Tjóns af akstri á ósléttri akbraut, svo sem á gírkassa, drifi, öðrum hlutum í eða á undirvagni ökutækisins, og skemmda á undirvagni sem hljótast af því að ökutækið tekur niðri á ójöfnum akbrautum, svo sem hryggjum eftir veghefla, jarðföstu grjóti á akbraut eða við akbrautarbrúnir. Sama gildir um skemmdir er verða þegar laust grjót hrekkur undir ökutækið í akstri.
- Tjóns á framljósum og lakki ökutækisins af völdum malar eða steina sem fljúga af veginum og lenda á ökutækinu af völdum annarra ökutækja er aka fram hjá á malarvegum.
- Aðrar undantekningar geta átt við samkvæmt skilmálum frá tryggingafélagi eiganda.
47. Leigutaki getur lækkað eigin áhættu og aukið tryggingarvernd með því að kaupa Platínum kaskótryggingu. Eigin áhætta fyrir hvert tjón sem leigutaki er tryggður fyrir samkvæmt leigusamningnum er tilgreind í samningnum.
- Platínum kaskótrygging inniheldur Silfur kaskótryggingu og nær einnig yfir tjón á framrúðu og öðrum rúðum, sem og á framljósum og lakki ökutækisins sem hlýst af grjótkasti af veginum á ökutækið frá öðrum ökutækjum á malarvegum. Einnig nær hún almennt yfir tjón á undirvagni ökutækis, s.s. pústkerfi, gírkassa og vél ef ökutæki tekur niðri á almennum vegi eða F-merktum vegum en þó aðeins ef ökutækið er hæft til slíks aksturs samkvæmt skilmálum þessum. Platínum kaskótrygging nær hvorki yfir tjón af völdum sands, malar, ösku, gosösku eða annarra jarðefna sem fjúka á ökutækið, sbr. m-lið 46. gr., né yfir tjón á felgum, hjólbörðum, hjólkoppum, fjöðrun, rafgeymum eða útvarpi, sbr. o-lið 46. gr.
- Almennir fyrirvarar sem tilgreindir eru í a–t-lið 46. gr. eiga einnig við Platínum kaskótryggingu, að undanskildum liðum p, r og s.
48. Hver trygging gildir aðeins fyrir það ökutæki sem er skráð á samning hverju sinni. Ef skipta þarf um ökutæki á samningstíma falla keyptar aukatryggingar vegna fyrra ökutækis úr gildi. Þetta á þó ekki við ef skipta þarf um ökutæki vegna venjulegs slits, bilunar sem leigutaki ber ekki ábyrgð á eða tjóns sem leigutaki er tryggður fyrir samkvæmt leigusamningnum.
Almenn ákvæði
49. Leigutaki skal geta framvísað leigusamningnum, á pappír eða rafrænt, meðan á leigutíma stendur.
50. Viðaukar og breytingar á leigusamningi skulu vera skrifleg.
51. Eigandi á rétt á að færa leigugjaldið sem og annað sem leigutaki á að greiða samkvæmt leigusamningnum á:
- kreditkort leigutaka
- viðskiptareikning leigutaka hjá eiganda.
Eigandi skal einn hafa ákvörðunarvald um hvenær það skuli gert og hvort það er gert í einu lagi. Réttur þessi stendur óhaggaður í 6 mánuði eftir að ökutæki hefur verið skilað til eiganda.
51a. Af gjaldföllnum og ógreiddum kröfum samkvæmt leigusamningnum reiknast dráttarvextir skv. lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá gjalddaga til greiðsludags, auk innheimtukostnaðar samkvæmt gjaldskrá eiganda og reglugerð um innheimtukostnað.
52. Um leigusamninginn, þ.m.t. skilmála þessa og vanefndir aðila, gilda íslensk lög. Það sama gildir um mögulegar bótakröfur aðila sem verða raktar til leigusamningsins. Ef leigusamningi er rift vegna vanefnda leigutaka er eiganda heimilt að skuldfæra fjárhæð sem ákvörðuð er með sama hætti og mælt er fyrir um í 24. gr., og miðast þá við eftirstöðvar leigutímabilsins þegar samningi er rift.
53. Komi til ágreinings um túlkun og framkvæmd leigusamningsins skulu báðir aðilar leitast við að leysa slíkan ágreining með samkomulagi. Ef það tekst ekki má vísa ágreiningi aðila til Héraðsdóms Reykjavíkur.






