Notkun á vefsvæði Brimborgar, www.langtimaleigaabil.is, er háð eftirfarandi notkunarskilmálum. Vinsamlega kynnið ykkur þá vandlega áður en þið notið vefsvæðið. Með notkun á vefsvæðinu samþykkir þú að vera bundin(n) af þessum notkunarskilmálum.
Takmörkun á afnotum: Efnið á vefnum, hvort sem um er að ræða texta, myndir eða annað efni, er í eigu Brimborgar og verndað af höfundarréttarlögum. Óheimilt er að nota efnið í heild sinni eða að hluta í atvinnuskyni eða til tekjuöflunar en þó er heimilt að vísa í efni á vefnum. Brimborg áskilur sér rétt til að banna tilvísanir sem gerðar eru í atvinnuskyni eða tilvísanir sem til þess eru fallnar að kasta rýrð á Brimborg eða þau vörumerki sem fyrirtækið hefur umboð fyrir. Athygli er vakin á því að öll vörumerki á þessum vef eru skráð vörumerki og er algerlega óheimilt að nota þau, dreifa eða afrita nema með skriflegu leyfi eiganda vörumerkisins.
Efni vefsvæðisins: Vefsvæði Brimborgar inniheldur upplýsingar um þær vörur eða þjónustu sem Brimborg býður til sölu hér á landi skv. samkomulagi við birgja hverju sinni. Ekki er tryggt að vörur á þessum vef séu ávallt til á lager eða þjónusta í boði og í einstaka tilfellum er eingöngu um að ræða að vara sé seld gegn sérpöntun. Brimborg og birgjar fyrirtækisins áskilja sér rétt til að breyta vöruframboði, verði og búnaði án fyrirvara. Upplýsingarnar á vefsvæðinu eru ekki tæmandi og koma aldrei í stað þeirra upplýsinga sem söluráðgjafar Brimborgar veita. Brimborg leggur áherslu á að upplýsingar á vefsvæðinu séu réttar en afsalar sér ábyrgð á því ef upplýsingar reynast rangar.
Verð á vöru og þjónustu: Verð vöru og þjónustu á vefnum er einungis til viðmiðunar. Upplýsingar um verð, lýsing vöru, staðalbúnaðar og verð aukabúnaðar fela ekki í sér bindandi tilboð af hálfu Brimborgar. Slíkar upplýsingar kunna að vera úreltar og Brimborg beinir því til notanda að sannreyna upplýsingarnar sem fram koma á vefsvæðinu á hverjum tíma hafi hann í hyggju að nýta þær með einhverjum hætti. Verð er með virðisaukaskatti nema annað sé sérstaklega tekið fram og getur breyst án fyrirvara og getur verið háð gengi á hverjum tíma, en nánar er kveðið á um verðskilmála í kaupsamningi eða við aðra staðfestingu við kaup á vöru og þjónustu.
Vernd persónuupplýsinga: Brimborg mun ekki nota þær persónuupplýsingar sem þú veitir fyrirtækinu í gegnum vefsvæðið til að senda þér upplýsingar eða tilboð ef þú óskar ekki eftir því. Brimborg mun ekki undir neinum kringumstæðum selja eða láta þriðja aðila í té umræddar upplýsingar.
Tenging við önnur vefsvæði: Brimborg ber ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum sem unnt er að tengjast í gegnum vefsvæði Brimborgar og eru með öllu ótengd Brimborg eða þeim birgjum sem Brimborg er umboðsaðili fyrir. Jafnframt ber Brimborg ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum öðrum sem veita aðgang að vefsvæði Brimborgar.
Takmörkun ábyrgðar: Brimborg tekur ekki ábyrgð á fjárhagslegu eða ófjárhagslegu tjóni af neinu tagi sem notandi eða aðrir kunna að verða fyrir vegna notkunar á vefsvæðinu. Brimborg áskilur sér rétt til að endurskoða þessa skilmála hvenær sem er.
Lögsaga og dómstólar: Notkunarskilmálarnir eru háðir íslenskum lögum og íslenskir dómstólar hafa einir lögsögu í ágreiningsmálum sem varða notkunarskilmálana og vefsvæðið.






