Fara í efni
Heim

Tilboðsbílar og mánaðarleiga

Tilboðsbílar eru á sérstöku tilboðsverði í takmarkaðan tíma. Þarftu bíl í styttri tíma? Mánaðarleiga er líka í boði.

Mánaðarleiga

Mánaðarleiga hentar þeim sem þurfa bíl tímabundið, til dæmis bíl númer tvö á heimilið, bíl fyrir skólann eða vetrarleigu. Leigutíminn er sveigjanlegur, frá einum mánuði og upp í ellefu, og viðhald, þjónusta og dekkjaskipti eru innifalin.

Skilmálar mánaðarleigu

  • Greiðsla fer eingöngu fram í gegnum kreditkort. Viðskiptavinur skal framvísa gildu ökuskírteini og kreditkorti í sínu nafni við afhendingu bílsins.
  • Sýndarkort eins og í gegnum Apple Pay eru ekki tekin gild.
  • Fyrir mánaðarleigur greiðir viðskiptavinur fyrsta mánuðinn og greiðir svo einn mánuð í tryggingu við afhendingu bílsins.
  • Mánuður í tryggingu er endurgreiddur við lok leigutímabilsins ef ökutæki er tjónlaust og ekkert útistandandi.
  • Fyrirtækjum býðst kostur á að sækja um reikningsviðskipti.
  • Skilyrði langtímaleigu er að viðskiptavinur gefi leyfi til uppflettingar á kennitölu hjá Credit Info.
  • Lágmarksleigutími 1 mánuður
Senda fyrirspurn um mánaðarleiguSkoða notaða bíla
FordVolvoPolestarMazdaPeugeotCitroenOpel